Gjafavara.is - Um okkur

Í körfunni eru 0 stk

Samtals:
0 ,-kr

Vörur

Póstlisti

Innskráning

Nýskrá
Gjafavara.is on Facebook

Gjafavara.is

Um árabil hefur fyrirtækið Volare ehf rekið heildsölu með húð, hár og heilsuvörur undir merkjum Volare. Ennfremur hefur verið starfrækt gjafavöruverslun undir sama heiti í Vestmannaeyjum. Fyrir tveimur árum ákvað fyrirtækið að herja inn á ný mið.  Var sett á laggirnar leikfanga og barnafataverslun undir heitinu Barnaborg.  Verslunin fékk frábærar viðtökur hjá Eyjamönnum og fljótlega var komið að því að huga að sameiningu verslananna. Það gerðist fyrir rúmu ári síðan.  Niðurstaðan varð ný og glæsileg verslun að Vesturvegi 10 í Vestmannaeyjum þar sem hægt er að kaupa ýmis konar gjafavöru, leikföng af öllum stærðum og gerðum, púsluspil t.d Wasgij, reiðhjól fyrir þá yngstu og þá sem eldri eru og fatnað fyrir börnin.  Þar sem stöðugt er verið að leita nýrra leiða til þess að ná til viðskiptavina fannst okkur tilvalið að næsta skref yrði netverslun.  Niðurstaðan varð netverslunin gjafavara.is.  Við höfum lagt mikið upp úr góðri þjónustu við okkar viðskiptavini í versluninni og ætlum svo sannarlega að standa okkur jafnvel á veraldarvefnum. Til að mynda bjóðum við viðskiptavinum okkar, bæði í versluninni í Eyjum og á netinu upp á fría innpökkun og þannig væri hægt að klára afmælis- og jólagjafir í gegnum netið, eða bara tækifærisgjafir, til að mynda fyrir Íslendinga búsetta erlendis.   Vonumst við til að þeir sem hingað koma finni eitthvað við sitt hæfi og hikið ekki við að hafa samband ef það eru einhverjar sérstakar óskir sem þið eruð með. 

Starfsfólk og eigendur Volare ehf